|
Skrifað af Stefán Jónsson
|
|
Til að skipta um peru í peru einingu, athugið að nota hanska þar sem ekki má koma húðfita á peruna, þá er gott að bera sig að á eftirfarandi hátt:
Taka gömlu peruna úr:
- Einingin er tekin úr varpanum og sett stöðug á borð.
- Gott er að merkja m. tússi saman gömlu peruna og eininguna
- Tengingar milli einingar og peru eru losaðar, ath að hafa nýju peruna til hliðsjónar þannig að losað sé á réttum enda vírsins.
- Þá er peran losuð, oftast eru það stál spennur sem halda henni ýmist festar með skrúfu eða smella fastar, en þetta er útfært á mismunandi hátt.
- Setja nýju peruna í:
- Nýja og gamla peran eru bornar saman og fundið hvernig nýja peran á að snúa, en merkingin er til að auðvelda það, einnig eru tengingarnar oft þannig að það segir sig sjálft.
- Nýja peran fest í eininguna, athugið að perur eru brothættar og beita ekki afli við það.
- Tengingarnar festar til samræmis við það sem var.
- Einingin sett í.
|