Perur.is Hjálp

Hvernig veit ég hvað á að kaupa ?

Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stefán Jónsson   
Það eru í megindráttum fjórar mismunandi útgáfur af perum, það er mismunandi eftir skjávörpum hvað er til í hverja gerð.
Þessar fjórar mismunandi gerðir eru:
Orginal Module (það er orginal ef annað er ekki tekið fram) - Upprunaleg perueining frá upprunalegum framleiðanda, sama og kemur í skjávarpanum frá verksmiðju. Þessar einingar eru settar beint í skjávarpan.
Bulb Only FRAMLEIÐANDI - Upprunaleg stök pera, er stök upprunaleg pera frá sama framleiðanda og verksmiðjan notar. Það er sami líftími og á upprunalegu perunni sem þarf að skipta um peruna í eldri peru einingu, oftast eru perurnar festar í einingarnar með stál spennum og koma með vírum og tengingum sem passa við eininguna.
Generic Module - Peru einunig sem passar beint í skjávarpann. Þessar einingar eru ekki frá upprunalega framleiðandanum en gefa a.m.k. sama líftíma.
Bulb only - Aðeins peran eru stakar perur sem þarf að setja í eldri peru einingu, oftast eru perurnar festar í einingarnar með stál spennum og koma með vírum og tengingum sem passa við eininguna. Þessar perur eru oft frá öðrum framleiðanda en upprunalegu perurnar en hafa sama eða lengri líftíma.

Sumir skjávarpar eru með örflögu í peru einingunni sem kemur í veg fyrir að hægt sé að endursetja peru teljarann ef aðeins er skipt um peruna. Í þeim tilvikum er hægt að setja miða með teljara stöðunni þegar skipt var um peruna á varpann.
LAST_UPDATED2
 

Hvernig veit ég að peran er farin ?

Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Flesta bilanir í skjávörpum eru vegna bilaðrar peru. Algeng einkenni eru:
  • Dauf mynd vegna ónógrar birtu.
  • Kvikanar ekki á perunni.
  • Kviknar ekki á varpanum.

Ef litarugl er í varpanum er oftast um snúruvandræði að ræða, eða bilun í varpa.
LAST_UPDATED2
 

Að leita eftir skjávarpaperu

Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Það eru tvær megin leiðir til að finna réttu peruna:
  1. Sláið inn í Vöruleit eða leit model skjávarpans, td. fyrir Proxima DP6100 er sett inn DP6100 eða peru númer framleiða sem er fyrir hann LAMP-026.
  2. Veljið framleiðanda úr listanum og finnið síðan peru valkostina innan listans sem birtist
LAST_UPDATED2
 

Innskráning

Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stefán Jónsson   
Til að geta sett inn pöntun er nauðsyn að skrá sig sem notanda á vefinn. Það þarf að nota gilt netfang og kemur stafesting á skráningu send á það, í því skeyti kemur hlekkur sem þarf að smella á til að sannreyna að sami hafi skráð sig og á netfangið.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af að lykilorð gleymist því að alltaf er hægt að endursetja það af hlekk í innskráningar síðu, þá kemur nýtt lykilorð sent á netfangið sem upphaflega var skráð og slegið inn.
LAST_UPDATED2
 

Að skipta um peru í peru einingu

Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Stefán Jónsson   
Til að skipta um peru í peru einingu, athugið að nota hanska þar sem ekki má koma húðfita á peruna, þá er gott að bera sig að á eftirfarandi hátt:

Taka gömlu peruna úr:
  1. Einingin er tekin úr varpanum og sett stöðug á borð.
  2. Gott er að merkja m. tússi saman gömlu peruna og eininguna
  3. Tengingar milli einingar og peru eru losaðar, ath að hafa nýju peruna til hliðsjónar þannig að losað sé á réttum enda vírsins.
  4. Þá er peran losuð, oftast eru það stál spennur sem halda henni ýmist festar með skrúfu eða smella fastar, en þetta er útfært á mismunandi hátt.

  1. Setja nýju peruna í:
  2. Nýja og gamla peran eru bornar saman og fundið hvernig nýja peran á að snúa, en merkingin er til að auðvelda það, einnig eru tengingarnar oft þannig að það segir sig sjálft.
  3. Nýja peran fest í eininguna, athugið að perur eru brothættar og beita ekki afli við það.
  4. Tengingarnar festar til samræmis við það sem var.
  5. Einingin sett í.
 


Tungumál

Icelandic

Vöruleit

Karfan mín

Karfa er tóm

Framleiðendur



 

Notanda stillingar